Inspired by Iceland

Flatey á Breiðafirði

þar sem tíminn stendur kyrr....

kort_forsíðaFlatey er ein af náttúruperlum landsins og þekkt fyrir sitt einstaka tímaleysi. Á eyjunni búa í dag 5 einstaklingar allt árið um kring, en á sumrin bætast við ferðamenn og eigendur sumarhúsa sem margir hverjir eiga ættir sýnar að rekja til Flateyjar.

Þegar rölt er um eyjuna er eins og maður sé komin um 100 ár aftur í tímann. Húsin í gamla þorpinu hafa verið gerð upp í hinum litskrúðuga gamla stíl og augljóst að mikið er lagt upp úr að halda í upprunalegu mynd þorpsins.

Fyrir ferðamenn er margt að sjá og skoða í eyjunni; einstaka náttúru, fjölskrúðugt fuglalíf, kirkjuna með málverkum Baltasars, kyrrðina, tímaleysið, gömlu bókhlöðuna, söguslóðir og gamla þorpið. Ef hungrið sækir að er hægt að gæða sér á ljúffengum kræsingum í veitingasal Hótel Flatey eða taka með sér nesti og fara í ævintýralega lautarferð með fjölskyldunni.

Auðvelt aðgengi - Ferjan Baldur

Á sumrin siglir ferjan Baldur daglega tvær ferðir yfir Breiðafjörðinn frá Stykkishólmi til Brjánslækjar með viðkomu í Flatey. Það er því hægt að skreppa út í eyju í nokkra klukkutíma, heilan dag eða jafnvel nýta sér eitthvað af gistimöguleikunum og njóta eyjunnar í lengri tíma. Fyrir þá sem ferðast með bíl, er mögulegt að senda bílinn á undan sér yfir fjörðinn á meðan stoppað er í Flatey. Þetta er mjög hentugur kostur fyrir þá sem eru t.d. að ferðast yfir á Vestfirði en vilja stoppa á leiðinni og njóta eyjarinnar um stund.

 

Afslættir í Flatey

Sumarið 2011 er boðið upp á frábæra fjölskylduafslætti með ferjunni Baldri út í Flatey.

  • Börn 0-15 ára fá frítt (í fylgd með foreldrum).
  • Unglingar 16-20 ára fá helmingsafslátt (í fylgd með foreldrum).
  • Einnig er hægt að kaupa t.d. 20 eininga kort sem veita 25% afslátt af verðskrá Baldurs. Sjá nánar um þau í verðskrá

Bókaðu núna
Vetraráætlun til Flateyjar
Sumaráætlun 2012

Dagsferði frá Stykkishólmi: 
10. júní - 26. ágúst 2012

     Frá Stykkishólmi 9:00: 

     Komin til Flateyjar 
10:30
     Brottför frá Flatey
13:15 eða 20:00

     Frá Stykkishólmi 15:45: 

     Komin til Flateyjar 17:15
     Brottför frá Flatey 20:00


Áætlun yfir fjörðinn og frá Brjánslæk Sjá nánar

Bílar:   
Athugið að ekki er hægt að fara með bíla í Flatey.
Hægt er að senda bíla á undan sér yfir fjörðinn 
og stoppa í Flatey.

Sumarverð 2012

Verð: 
Farþegar: 

Stykkish. - Flatey - Stykkish.: 
 6.760
Brjánsl. - Flatey - Brjánsl.:  
 5.400           
Börn 16 - 20 ára
50% afsláttur
Börn 0-15 ára:  Frítt    
Gjafabréf  Upplýsingar
Vefbókanir 10% afsláttur


Bílar:   Ferjan Baldur - verðskrá