Inspired by Iceland

Sérferðir

Sérferðir fyrir einstaklinga eða hópa


Sæferðir leigja litla og stóra báta í sérferðir um Breiðafjörðinn. Bátarnir geta hentað fyrir 2 einstaklinga, 120 manna hópa og allt þar á milli.
Njóttu ævintýraheims Breiðafjarðar með þínum eigin skipstjóra og leiðsögumanni:

  •     Veiddu þér í soðið
  •     skoðaðu lundabyggðirnar
  •     sjáðu hafernina
  •     kíktu í heimsókn í Flatey
  •     farðu í jarðfræðirannsóknarleiðangur
  •     fuglaskoðun
  •     bjóddu makanum í rómantíska ævintýraferð
  •     eða hvað annað sem þér dettur í hug.

Búðu til ferð sem hentar hópnum þínum

Hér fyrir neðan má finna ferðalýsingar sem geta hjálpað þér við að ákveða hvað hentar þínum hópi.  Hafðu svo samband við okkur og við aðstoðum þig við að setja saman draumaferðina.

 

Ævintýraheimur Breiðafjarðar:

Upplýsingar
Frá: Stykkishólmur
Áætlun: all year around
Lengd:  3-3,5 klst.
Verð: frá 188.000,- kr.

Ferðin byrjar eins og hin vinsæla Ævintýrasigling Sæferða, þar sem sigldur er hringur um suðureyjar Breiðafjarðar. Fuglalíf og ýmis náttúrufyrirbrigði eru skoðuð. Þá er komið að því að smakka ferska hörpuskel og ígulkerjahrogn. áður en haldið er aftur í land er tekinn góður tími í sjóstangveiði þar sem farþegar fá að veiða sjálfir- Þorskurinn er sá sem oftast býtur á, en stundum veiðast líka karfi, ufsi og ýsa.

 

Rómantísk Ævintýraferð:

Upplýsingar
Frá: Stykkishólmur
Áætlun: fyrirspurn
Lengd: 6-7 klst.
Verð: frá 320.000,- kr.

Í þessari ferð færð þú að upplifa ævintýraheim Breiðafjarðar :-)
Ferðin byrjar eins og hin vinsæla Ævintýrasigling og síðan er farið í sjóstöng.
Nú er komið að því að smakka ferska hörpuskel og ígulkerjahrogn! Þetta lostæti sjávarins er borði fram með hvítvíni og segja má að þetta sé ferskasta sushi í heimi!
Hápunktur ferðarinnar er þegar farið er í litla eyju á Breiðafirði þar sem er náttúrlegur heitur pottur, farþegar njóta þessarar stundar og eftir það er haldið út í Flatey- þar sem tíminn hefur staðið kyrr í marga áratugi. Mögulegt er að bæta við kvöldverði á Hótel Flatey eða um borð.

 

Miðnætursigling Sæferða:

Upplýsingar
Frá: Stykkishólmur
Áætlun: May-July
Lengd: 8 klst.
Verð: frá 289.000,- kr.

Byrjað er á skemmtilegri útsýnissiglingu um suðureyjar Breiðafjarðar. Lítill plógur er settur út og upp koma ýmiskonar sjávardýr. Öllum gefst tækifæri á að smakka ferska hörpuskel og ígulkerjahrogn :-)
Létt snarl er svo borið fram í útsýnissal skipsins - matseðillinn ræðast af óskum hópsins.
Nú er stefnan sett á hina fornfrægu eyju Flatey. Gengið er um eyjuna með leiðsögumanni. Síðan býður lúxus-miðnæturverður eftir hópnum í Samkomuhúsinu; veitingastað Hótel Flateyjar.
Fyrir miðnættið er svo vengið upp á hæsta punkt Flateyjar (sem er eins og nafnið bendir til ekkki mjög há) og fylgst með hinni einstöku íslensku miðnætursól :)