Inspired by Iceland

Sérferðir fyrir hópa

Sérferðir fyrir hópa

Sæferðir leigja litla og stóra báta í sérferðir um Breiðafjörðinn. Bátarnir geta hentað fyrir allt að 120 manna hópa og allt þar á milli. Njóttu ævintýraheims Breiðafjarðar með þínum eigin skipstjóra og leiðsögumanni:

  • Veiddu þér í soðið
  • skoðaðu lundabyggðirnar
  • sjáðu hafernina
  • kíktu í heimsókn í Flatey
  • farðu í jarðfræðirannsóknarleiðangur
  • fuglaskoðun
  • eða hvað annað sem þér dettur í hug.

 

Búðu til ferð sem hentar hópnum þínum

Hér fyrir neðan má finna ferðalýsingar sem geta hjálpað þér við að ákveða hvað hentar þínum hópi. Hafðu svo samband við okkur og við aðstoðum þig við setja saman draumaferðina.

 

Ævintýrasigling- Einkaferð:

Fuglar, ferskt skeljasmakk, eyjarnar óteljandi, sagan og ógleymanleg ævintýri!
Nánari lýsingu á Ævintýrasiglingunni má finna hér.
Bættu við kvöldverð eftir siglinguna og þá ertu komin með "kvöldverð á Breiðafirði".
Þessi ferð er einnig í boði á tímabilinu frá 14. maí - 15. október og hægt er að bóka hópa inn í þær ferðir. (ath. takmarkaðar tímasetningar)

 

Veisluferð - Einkaferð:

Ferðin byrjar eins og hin vinsæla Ævintýrasigling Sæferða, þar sem er sigldur er hringur um suðureyjar Breiðafjarðar. Fuglalíf og ýmis náttúrufyrirbrigði skoðuð. Skelfiskur veiddur og snæddur beint úr hafinu ásamt ígulkerahrognum. Á Breiðasundi er boðið upp á glæsilegt hlaðborð. Endilega hafið samband við skrifstofuna og fáið tilboð hjá okkur.

 

Ævintýraheimur Breiðafjarðar:

Í þessari ferð færð þú að upplifa ævintýraheim Breiðafjarðar :-)
Ferðin byrjar eins og hin vinsæla Ævintýrasigling en farþegar hér fá tækifæri til að fara í land á hæstu eyju Breiðafjarðar - Dímonaklökkum. Þaðan er hreint ótrúlegt útsýni.
Nú er komið að því að smakka ferska hörpuskel og ígulkerjahrogn! Þetta lostæti sjávarins er borði fram með hvítvíni og dýfum og segja má að þetta sé ferskasta sushi í heimi! Síðan er boði upp á hádegisverð um borð og svo enn meira af eyjunum óteljandi.
Því næst er farið í Flatey - þar sem tíminn hefur staðið kyrr í marga áratugi. Mögulegt er að bæta við kvöldverði á Hótel Flatey eða um borð.

 

Miðnætursigling Sæferða:

Byrjað er á skemmtilegri útsýnissiglingu um suðureyjar Breiðafjarðar. Lítill plógur er settur út og upp koma ýmiskonar sjávardýr. Öllum gefst tækifæri á að smakka ferska hörpuskel og ígulkerjahrogn :-)
Létt snarl er svo borið fram í útsýnissal skipsins - matseðillinn ræðast af óskum hópsins.
Nú er stefnan sett á hina fornfrægu eyju Flatey. Gengið er um eyjuna með leiðsögumanni. Síðan býður lúxus-miðnæturverður eftir hópnum í Samkomuhúsinu; veitingastað Hótel Flateyjar.
Fyrir miðnættið er svo vengið upp á hæsta punkt Flateyjar (sem er eins og nafnið bendir til ekkki mjög há) og fylgst með hinni einstöku íslensku miðnætursól :)

 

Bláskeljaferð- Ný og spennandi ferð fyrir hópa:

Sæferðir í Stykkishólmi bjóða upp á nýja ferð; Bláskeljarferð. Þar er fersk breiðfirsk bláskel úr umhverfisvænni og sjálfbærri línuræktun borin fram.

Íslensk bláskel (Mytilus edulis) finnst í hafinu í kringum Ísland. Í matarsögu Íslands hefur bláskelin eða kræklingurinn ekki verið nýttur mikið til matar en í Evrópu þykir hún herramannsmatur.
Í ferðinni er siglt er um óteljandi eyjar Breiðafjarðar, söguslóðir heimsóttar og sterkustu sjávarfallastraumar við Íslandsstrendur kannaðir. Svæðið iðar af fuglalífi og þá má meðal annars sjá toppskarfa, lunda, ritu, kríu, fýl, æðarkollu og stundum jafnvel haförninn, konung íslenskra fugla.
Skelfiskur er veiddur og snæddur beint úr hafinu ásamt ígulkerahrognum. Á heimleiðinni er boðið upp á Bláskel með tilheyrandi sósu og brauði og óborganlegu útsýni.

Tilvalið er að tengja við ferðina heimsókn í Bjarnarhöfn og smakka þar hákarlinn hjá Hildibrandi. Einnig býður Vesturlandið upp á margvíslega gistimöguleika.

 

Athugið: Hægt er að klæðskerasníða ferðirnar að þörfum hvers og eins.

 

Frekari upplýsingar í síma 433 2254 eða tölvupósti
saeferdir@saeferdir.is