Inspired by Iceland

Skólahópar

Sæferðir í Stykkishólmi bjóða upp á fræðandi og skemmtilegar ferðir fyrir skólahópa. Hér fyrir neðan má sjá tvær af vinsælustu skólahópaferðunum okkar; Ævintýrasiglingu og ferð í Flatey.

Sérferðir eru einnig í boði - hafðu samband við okkur.

Ævintýrasigling fyrir skólahópa

Skemmtileg og fræðandi sigling um suðureyjar Breiðafjarðar þar sem skoðað er fjölskrúðugt fuglalíf svæðisins, sérkennilegar bergmyndanir, siglt inn í sjávarfallastrauma og ýmis önnur sérkenni eyjanna skoðuð. Lifandi leiðsögn er í ferðinni og möguleikar á að leggja áherslu á sérstök viðfangsefni s.s. söguslóðir, jarðfræði eða sjávarlíffræði.

Plógur er síðan settur út og dreginn eftir sjávarbotninum og um borð koma kræsingar sem aðeins þeir hugrökkustu þora að smakka, s.s. hörpuskel og ígulkerahrogn auk fjöldann allan af öðrum sjávardýrum sem áhugavert er að skoða.

Flatey á Breiðafirði

Þegar siglt er yfir Breiðafjörð frá Stykkishólmi til Brjánslækjar er komið við í Flatey, sannkallaðri náttúruperlu þar sem tíminn hefur staðið í stað í marga áratugi. Flatey er önnur af aðeins tveimur eyjum í Breiðafirði sem enn er í heilsársbyggð. Húsunum á eyjunni hefur þó verið haldið vel við af eigendum sínum sem njóta einstaks umhverfis eyjunnar yfir sumarmánuðina.

Þegar gengið er um eyjuna má sjá söguna ljóslifandi, allt um kring. Flatey var einn aðal verslunarstaður svæðisins, þar var blómstrandi menningarlíf og svæðið sannkölluð matarkista. Gaman er að rölta um eyjuna, skoða gamla þorpið, kirkjuna – sem er myndskreytt á einkar skemmtilegan hátt, elstu bókhlöðu landsins, einstakt fuglalíf auk þess að njóta kyrrðarinnar.

Yfir sumartímann er rekið hótel og veitingastaður í Flatey, einnig er þar tjaldsvæði. Heimagisting er í boði allt árið um kring.

Hægt er að stoppa í Flatey milli ferða Baldurs. Frá Stykkishólmi er val um 2,5 klst. eða 9,5 klst. stopp (skv. sumaráætlun). Einnig er möguleiki fyrir fólk á leiðinni yfir á Brjánslæk að senda bílinn á undan sér (enginn auka kostnaður) og stoppa í eyjunni í 6 klst.

Frekari upplýsingar um Stykkishólm og nágrenni

Gisting í Stykkishólmi fyrir skólahópa

  • Hótel Stykkishólmur - www.hotelstykkisholmur.is sími: 430-2100
  • Hótel Breiðafjörður – hotelbreidafjordur@simnet.is sími: 433-2200
  • Félagsheimilið Skjöldur - Sími: 438 1535 og 438 1510. 8 km fyrir utan Stykkishólm.
  • Farfuglaheimilið Sjónarhóll - Sími: 861 2517 og 438 1417.

Fjölbreyttir afþreyingarmöguleikar fyrir skólahópa

  • Sundlaug Stykkishólms býður upp á glæsilega aðstöðu; 12 m. innisundlaug og 25 m. útisundlaug, tvo heita potta með heilsuvatni, vaðlaug og risa-rennibraut. Boðið er upp á sérstök skólatilboð í sundlaugina ef bókað er fyrirfram (sími: 438-1150).
  • Gömul hús. Í Stykkishólmi eru mörg falleg, uppgerð gömul hús og setja þau skemmtilegan svip á bæinn. Gamla kirkjan við Aðalgötu er t.d. búin að fá sína upprunalegu mynd. Einnig má nefna Kúldshús, Norska húsið, Egilshús, Clausenshús, Sjávarpakkhúsið og Tang og Riis. Í upplýsingamiðstöðinni er hægt að nálgast bækling um gömlu húsin í Stykkishólmi.
  • Gönguferðir m/ leiðsögn um gamla bæinn þar sem sögð er saga gömlu húsanna og umhverfisins. Lagt er af stað frá Sjávarborg, versluninni sem stendur á hafnarbakkanum og eru ferðir eftir samkomulagi.
  • Norska húsið. Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla. Þar er krambúð með handverk, listmuni o.m.fl. til sölu.
  • Vatnasafnið. Á einum fallegasta útsýnisstaðnum í Stykkishólmi er Vatnasafnið staðsett. Bandaríska listakonan Roni Horn mótaði Vatnasafnið í samhljómi við hina einstöku staðsetningu hússins, með yfirsýn yfir haf, höfn og bæ.

Náttúran í nágrenni Stykkishólms 

  • Súgandisey er við höfnina og veitir henni skjól fyrir norðanátt. Hún var tengd við land árið 1998 og fer Ferjan Baldur þaðan frá bryggju. Upp í eyjuna liggja tröppur með handriði og þaðan er göngustígur í ástarhreiðrið og vitann, sem er meira en 100 ára. Þar uppi er fádæma fagurt útsýni yfir Breiðafjörðinn, eyjarnar og Snæfellsnesfjallgarð.
  • Helgafell er sögufrægur staður allt frá landnámsöld og hefur verið kirkjustaður frá Kristnitöku. Þar er falleg nýuppgerð sveitakirkja og þar er m.a. að finna leiði Guðrúnar Ósvífursdóttur. Sagt er að menn fái 3 óskir uppfylltar ef gengið er á fellið frá leiði Guðrúnar upp eftir stígnum án þess að líta til hliðar eða aftur fyrir sig eða mæla orð. Gengið er beint í byrgið upp á fellinu, sem er leifar af gamalli kapellu, snúið í austur og óskirnar bornar fram í hljóði. Uppi á fellinu er útsýnisskífa.
  • Í Bjarnarhöfn hefur verið búið frá fornu fari. Skemmtileg gönguleið er fyrir Bjarnarhafnarfjall, sem er stórt og tignarlegt. Í Bjarnarhöfn tekur Hildibrandur bóndi á móti gestum, sýnir þeim hákarlaverkun sína og gamla bændakirkju sem þar er og margt fleira sem þar er forvitnilegt. 
  • Berserkjahraun þekur allmikið af vesturhluta Helgafellssveitar og nær milli fjalls og fjöru. Talið er að hraunið hafi runnið fyrir liðlega 4000 árum og upptökin voru úr fjórum gjall- og vikurkúlum. Rauðakúla er þeirra hæst (379 m) auðvelt er að ganga þar upp og er útsýnið þaðan stórfenglegt. Í hraunjaðrinum eru einnig gamlir áningastaðir sem kallast Nátthagar. Hægt er að aka í gegnum það.
  • Berserkjagata er nálægt vegamótunum til Bjarnarhafnar. Hún er frægust af hraungötunum í Berserkjahrauni. Hún var rudd af berserkjunum, tveimur bræðrum, sænskum að ættum. Hétu þeir Halli og Leiknir. Vermundur hinn mjóvi í Bjarnarhöfn flutti þá hingað til lands árið 982. Berserkjagatan er elsta mannvirki í vegagerð hér á landi, sem vitað er hverjir unnu, eins og segir í Eyrbyggju. Við hana má einnig sjá leifar af garði sem berserkirnir hlóðu og dysina sem þeir voru grafnir í eftir að þeir voru vegnir.
  • Drápuhlíðarfjall er sérstaklega fallegt , ljóst líbarítfjall sunnan við Þórsnesið. Trúðu menn áður fyrr að þar væri að finna gull og aðra dýra málma. Það var litur fjallsins sem blekkti og þó gull hefði fundist var það í litlum mæli og reyndist að mestu vera brennisteins-kís sem stundum er kallað glópagull. Í austurhlíðum fjallsins er Vatnsdalur, gróið útivistarsvæði í eigu Stykkishólmsbúa.

 

Verið velkomin í Stykkishólm; bæinn við eyjarnar óteljandi  :)

 

Starfsfólk Sæferða

Bókaðu núna
Ævintýrasigling - Skólahópar - Verð

Frá:     Stykkishólmi     

Lengd ferðar:     2 klst. & 15 mín.     

Áætlun:

15. - 31. maí 
11:00
1. júní - 31. ágúst    11:00 & 14:30
1. - 15. sept. 11:00

 Ferðir fyrir hópa utan þessa tíma skv. samkomulagi

Skólahópaverð 2010:

Nemendur:
2.975
Kennarar
FRÍTT
Leiðsögumenn
FRÍTT
Hópar 50+ 200 kr. afsláttur

Styttri og lengri ferðir einnig í boði. Frekari upplýsingar á skrifstofu.

Flatey fyrir skólahópa - Verð

Skólahópaverð 2010:

Stykkish. - Flatey - Stykkish.:
2.450 kr.
Kennarar
FRÍTT
Leiðsögumenn
FRÍTT
Yfir Breiðafjörðinn
Hafðu samband

 

Áætlun með Ferjunni Baldri

Sjá hér