Ath. Bretying á slipptímanum - en aðra dagsetningu er í skoðun...
Frábær ferðamáti
Ferjan Baldur siglir allt árið yfir Breiðafjörð frá Stykkishólmi til Brjánslækjar, með viðkomu í Flatey .
Um borð er góður veitingastaður og frábær aðstaða fyrir farþega. Á leiðinni er hægt að slaka á og njóta útsýnisins en á sama tíma spara tíma þar sem siglingin tekur skemmri tíma en að keyra. Ferðin yfir fjörðinn tekur um 2 1/2 klst.
- Nýtt: Þráðlaust netsamband um borð í ferjunni Baldri
- Athugið að mikilvægt er að bóka fyrir bíla fyrirfram.
Viðkoma í Flatey
Margir ferðamenn kjósa að stoppa milli ferða í Flatey. Fyrir þá sem ferðast með bíl er hægt að senda bílinn yfir fjörðinn á meðan stoppað er í eyjunni. Ekkert aukagjald er tekið fyrir þessa þjónustu. Sjá nánar hér.
Afslættir
Yfir sumartímann er boðið upp á frábæra fjölskylduafslætti í Ferjuna Baldur.
- Börn 0-15 ára fá frítt (í fylgd með foreldrum).
- Unglingar 16-20 ára fá helmingsafslátt (í fylgd með foreldrum).
Einnig er hægt að kaupa 20 eininga kort sem veita 25% afslátt af verðskrá Baldurs. Sjá nánar um þau í verðskrá eða á skrifstofu Sæferða í síma 433 2254.
Athugið að veittur er 10% netbókunarafsláttur ef bókað er í gegnum vefinn!
Ef farþegar eru búnir að greiða fyrir miðana sína, en af einhverjum ástæðum komast ekki, þá er möguleiki á að fá þá endurgreidda. það verður þó að vera með meira en sólahrings fyrirvara og einnig er nauðsynlegt að skila miðunum til þess að fá endurgreitt.
Gleðilegt ferðasumar :-)