Inspired by Iceland

Ferjan Baldur

Frábær ferðamáti

Ferjan Baldur siglir allt árið yfir Breiðafjörð frá Stykkishólmi til Brjánslækjar, með viðkomu í Flatey 

Um borð er góður veitingastaður og frábær aðstaða fyrir farþega. Á leiðinni er hægt að slaka á og njóta útsýnisins en á sama tíma spara tíma þar sem siglingin tekur skemmri tíma en að keyra. Ferðin yfir fjörðinn tekur um 2 1/2 klst.

  • Nýtt:  Þráðlaust netsamband um borð í ferjunni Baldri
  • Athugið að mikilvægt er að bóka fyrir bíla fyrirfram

 

Viðkoma í Flatey

Margir ferðamenn kjósa að stoppa milli ferða í Flatey. Fyrir þá sem ferðast með bíl er hægt að senda bílinn yfir fjörðinn á meðan stoppað er í eyjunni. Ekkert aukagjald er tekið fyrir þessa þjónustu. Sjá nánar hér.

Afslættir

Yfir sumartímann er boðið upp á frábæra fjölskylduafslætti í Ferjuna Baldur.  

  • Börn 0-15 ára fá frítt (í fylgd með foreldrum).
  • Unglingar 16-20 ára fá helmingsafslátt (í fylgd með foreldrum). 

Einnig er hægt að kaupa 20 eininga kort sem veita 25% afslátt af verðskrá Baldurs. Sjá nánar um þau í verðskrá eða á skrifstofu Sæferða í síma 433 2254. 

 

Athugið að veittur er 10% netbókunarafsláttur ef bókað er í gegnum vefinn!

 

Ef farþegar eru búnir að greiða fyrir miðana sína, en af einhverjum ástæðum komast ekki, þá er möguleiki á að fá þá endurgreidda. það verður þó að vera með meira en sólahrings fyrirvara og einnig er nauðsynlegt að skila miðunum til þess að fá endurgreitt.

 

Gleðilegt ferðasumar :-)

Bókaðu núna
Sumaráætlun 2012

10. júní- 26. ágúst 2012

Frá:   Daglega kl.: 
 Stykkishólmi  09:00 15:45 
    Flatey (til Brjánslækjar)  10:30  17:15 
 Brjánslæk  12:15  19:00
    Flatey (til Stykkishólms)  13:15  20:00
Sumarverð 2012

1. juní - 31. ágúst 2012

Stykkishólmur > Brjánslækur:

Fullorðnir 4.950 kr.
Börn (0-15 ára) FRÍTT
Unglngar (16-20 ára) 2.475 kr.
Bílar* (frá) 4.950 kr.

Verðlisti í heild sinni

*Nauðsynlegt að bóka bíla fyrirfram
*Bílar eru ekki leyfðir í Flatey

Stykkishólmur > Flatey > Stykkish.

sjá hér

Vetraráætlun 2012

 1.jan. til 9.jún 2012
 

Frá: sun. til fös.   lau.*
 Stykkishólmi  15:00

 * 

  Brjánslæk  18:00

 *

 

* Aukaferðir á laugardögum verða sérstaklega auglýstar er áætlun er þá kl. 09:00 frá Stykkishólmi og 12:00 frá Brjánslæk

Aukaferð þann 19 Nóv. 2011

 

Páskaáætlun 2012

Skirdagur 5. april

Frá Stykkishólmi: 9:00 & 15:00

Frá Brjánsl. : 12:00 & 18:00

 

Föstudagurinn langi 6. apríl : Ekki siglt!!!!

 

Laugardaginn 7. april

Frá Stykkishólmi:  9:00

Frá Brjánslæk :  12:00   18:00 (ferjan biður vegna jarðafara!)

 

Páskadagur 8. apríl : ekki siglt!!!!

 

Annar í páskum 9. apríl

Frá Stykkishólmi: 9:00 & 15:00

Frá Brjánslæk: 12:00 & 18:00

 

Aðra dagar samkvæmt vetraráætlun

 

Sjá vetraráætlun til Flateyjar hér

Vetrarverð 2012

1.  jan. - 09. júni 2012

Stykkishólmur > Brjánslækur:

Fullorðnir 3.640 kr.
Börn(0-11 ára) FRÍTT
Unglingar (12-15 ára) 1.820 kr.
Bílar* (frá) 3.640 kr.

Verðskrá í heild sinni

*Nauðsynlegt að bóka bíla fyrirfram
*Bílar eru ekki leyfðir í Flatey

Stykkishólmur > Flatey > Stykkish.

Sjá hér