Leitarvél


Þú ert hér

Dagsferðir og afþreying

Ævintýrasigling frá Stykkishólmi

Til baka |  Prenta |  Senda |  Forsíða

Áætlun og verð 2010

Frá:     Stykkishólmi     

Lengd ferðar:     2 klst. & 15 mín.     

Áætlun:
15. - 31. maí 
11:00
1. júní - 31. ágúst    11:00 & 14:30
1. - 15. sept. 11:00
 Ferðir fyrir hópa utan þessa tíma skv. samkomulagi

Verð:
Fullorðnir:
5.950
Börn (0-15)
Frítt  (í fylgd með foreldrum)
Unglingar (16-20)  
2.975 (í fylgd með foreldrum)
Eldri borgarar 67+ 4.760
Vefbókanir 10% afsláttur
Gjafabréf   Sjá frekari upplýsingar hér.

Veitingasala:

Um borð er hægt að kaupa fjölbreyttar veitingar.

Tenglar og tengdar upplýsingar

Fuglar, ferskt skeljasmakk, eyjarnar óteljandi, sagan og ógleymanleg ævintýri!


Ævintýrasigling Breiðafjarðar er vinsælasta ferðin okkar. Þar er siglt um eyjarnar óteljandi, skyggnst inn í ævintýraheim Breiðafjarðar, skoðaðar fjölbreytilegar bergmyndanir, sögulegar slóðir og sterkustu sjávarfallastraumar við Íslandsstrendur.

Á sumrin iðar svæðið af fuglalífi og þá má meðal annars sjá toppskarfa, lunda, ritu, kríu, fýl, æðarkollu og stundum jafnvel haförninn, konung íslenskra fugla.

Hápunktur ferðarinnar er þegar plógur er settur út og upp koma ýmis skeldýr af botni sjávar. Gestir okkar fá tækifæri til að skoða gersemarnar..... en einnig smakka á hörpuskel og ígulkerjahrognum! Þorir þú?   :-)


Afsláttur

Athugið frábæra fjölskylduafsláttinn okkar í Ævintýrasiglinguna:

  • frítt fyrir börn 15 ára og yngri
  • helmingsafsláttur fyrir unglinga 16-20 ára

Einnig er 10% auka-afsláttur er bókað er á netinu   :)


Undirvalmynd

Bóka núna

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann og fáðu send tilboð og fréttir.

Bookmark and Share
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is