Ævintýrasigling frá Stykkishólmi
Áætlun og verð 2010
Frá: Stykkishólmi
Lengd ferðar: 2 klst. & 15 mín.
Áætlun:
15. - 31. maí
|
11:00
|
| 1. júní - 31. ágúst |
11:00 & 14:30 |
| 1. - 15. sept. |
11:00 |
Ferðir fyrir hópa utan þessa tíma skv. samkomulagi
Verð:
Veitingasala:Um borð er hægt að kaupa fjölbreyttar veitingar.
Tenglar og tengdar upplýsingar
Fuglar, ferskt skeljasmakk, eyjarnar óteljandi, sagan og ógleymanleg ævintýri!
Ævintýrasigling Breiðafjarðar er vinsælasta ferðin okkar. Þar er siglt um eyjarnar óteljandi, skyggnst inn í ævintýraheim Breiðafjarðar, skoðaðar fjölbreytilegar bergmyndanir, sögulegar slóðir og sterkustu sjávarfallastraumar við Íslandsstrendur.
Á sumrin iðar svæðið af fuglalífi og þá má meðal annars sjá toppskarfa, lunda, ritu, kríu, fýl, æðarkollu og stundum jafnvel haförninn, konung íslenskra fugla.
Hápunktur ferðarinnar er þegar plógur er settur út og upp koma ýmis skeldýr af botni sjávar. Gestir okkar fá tækifæri til að skoða gersemarnar..... en einnig smakka á hörpuskel og ígulkerjahrognum! Þorir þú? :-)
Afsláttur
Athugið frábæra fjölskylduafsláttinn okkar í Ævintýrasiglinguna:
- frítt fyrir börn 15 ára og yngri
- helmingsafsláttur fyrir unglinga 16-20 ára
Einnig er 10% auka-afsláttur er bókað er á netinu :)