| Komin til Flateyjar |
10:30 |
| Brottför frá Flatey |
13:15 eða 20:00 |
| Komin til Flateyjar | 17:15 |
| Brottför frá Flatey | 20:00 |
| Stykkish. - Flatey - Stykkish.: |
5.400 |
| Brjánsl. - Flatey - Brjánsl.: |
4.500 |
| Börn 16 - 20 | 50% afsláttur |
| Börn 0-15 ára: | Frítt |
| Gjafabréf | Upplýsingar |
| Vefbókanir | 10% afsláttur |
Á sumrin siglir ferjan Baldur daglega tvær ferðir yfir Breiðafjörðinn frá Stykkishólmi til Brjánslækjar með viðkomu í Flatey. Það er því hægt að skreppa í út í eyju í nokkra klukkutíma, heilan dag eða jafnvel nýta sér eitthvað af gistimöguleikunum og njóta eyjunnar í lengri tíma.
Fyrir þá sem ferðast með bíl, er mögulegt að senda bílinn á undan sér yfir fjörðinn á meðan stoppað er í Flatey. Þetta er mjög hentugur kostur fyrir þá sem eru t.d. að ferðast yfir á Vestfirði en vilja stoppa á leiðinni og njóta eyjarinnar um stund.
Í Flatey er boðið upp á fjölbreytta gistimöguleika:
Einnig er hægt að kaupa 20 eininga kort sem veita 25% afslátt af verðskrá Baldurs.
Sjá nánar um þau í verðskrá eða á skrifstofu Sæferða í síma 433 2254.
Athugið að veittur er 10% aukaafsláttur ef bókað er í gegnum vefinn!
Brúðguminn, nýjasta kvikmynd Baltasars sem kom út í vetur, var að mestu leiti tekin upp í Flatey. “Myndin hefur hlotið verðskuldaða athygli en í henni má sjá einstaklega fallegar og hugljúfar senur úr eyjunni. Við finnum fyrir auknum áhuga á Flatey í kjölfar myndarinnar og það hefur færst mikið í vöxt að fólk kaupi gjafabréf á Hótel Flatey og ferð með ferjunni til að gefa í stórafmælisgjafir” segir Kristrún Konráðsdóttir, markaðsstjóri Sæferða.