Leitarvél


Þú ert hér

Dagsferðir og afþreying


Sérferðir fyrir einstaklinga og litla hópa

Til baka |  Prenta |  Senda |  Forsíða

Komdu einhverjum á óvart og búðu til þína eigin ferð


Sæferðir bjóða upp á úrval af einkaferðum fyrir einstaklinga og smærri hópa (2-50 farþegar). Ef hópurinn þinn er stærri þá eru upplýsingar hér.

Hér fyrir neðan má finna tillögur að ferðum sem vonandi geta gefið þér hugmynd um hvað hægt er að gera  :)
Hafðu svo samband við okkur og í sameiningu búum við til draumaferðina fyrir þig og þína.



Rómantísk Ævintýraferð


     
  

Upplýsingar


Frá: Stykkishólmi

  Hvenær:   maí - sept.

 
 
 
 
Lengd:
6-7 klst.
 Verð: Tilboð
 


Þessi sérferð byrjar sem útsýnissigling um suðureyjar Breiðafjarðar þar sem skoðaðar eru eyjarnar óteljandi (ekki samt alveg allar), sjávarfallsstraumar og fuglarnir fljúgandi. Svo byrjar fjörið - rennt er fyrir fiski á sjóstöng.  Breiðafjörðurinn býður upp á gjöful fiskimið og því ætti að veiðast vel. Þoskurinn er sá sem oftast bítur á.
Hápunktur ferðarinnar er svo þegar farið er út í Drápssker þar sem leynist algjörlega einstök laug. Gestir fá tækifæri tl að baða sig í lauginni umkringdir Atlantshafinu!
Því næst er haldið til Flateyjar þar sem tíminn hefur staðið í stað áratugum saman. Eftir rölt um eyjuna bíður eftir ykkur rómantískur kvöldverður á Hótel Flatey.

Athugið að þessi ferð er mjög háð veðri og sjávarföllum.

Undur Breiðafjarðar

       

  

Upplýsingar


Frá: Stykkishólmi

  Hvenær:   Allt árið

 
 
 
 
Lengd:
3,5 klst.
 Verð: Tilboð
 


Við siglum um eyjarnar óteljandi, skoðum ótrúlegar bergmyndanir, sterkustu sjávarfallstrauma landsins og fuglana fljúgandi.


Hægt er að bæta við tíma fyrir sjóstangveiði.


Miðnætursigling

       

  

Upplýsingar


Frá: Stykkishólmi

  Hvenær:    maí - júlí
 
 
 
 
Lengd:
8 klst.
 Verð: Tilboð
 


Þessi ferð byrjar á stuttri siglingu um suðureyjar Breiðafjarðar, þar sem siglt er um eyjarnar óteljandi, skoðum ótrúlegar klettamyndanir og sjávarfallsstrauma og kíkjum á fuglana.

Því næst er haldið áleiðis til Flateyjar.  Gengið er með leiðsögumanni um eyjuna þar sem áður bjuggu um 300 manns (í dag aðeins 5 manns).  Eftir gönguna bíður yndælis matur eftir hópnum í Samkomuhúsinu - veitingastað Hótel Flateyjar.

Fyrir miðnættið er svo gengið á hæsta punkt eyjarinnar - sem eins og nafnið bendir e.t.v. til er ekki mjög hár, og njótum miðnætursólarinnar.

Svo er haldið til baka til Stykkishólms - eða nóttinni eytt á Hótel Flatey.





Undirvalmynd

Bóka núna

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann og fáðu send tilboð og fréttir.

Bookmark and Share
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is