Leitarvél


Þú ert hér

Dagsferðir og afþreying


Sérferðir fyrir hópa frá Stykkishólmi

Til baka |  Prenta |  Senda |  Forsíða

Búðu til ferð sem hentar hópnum þínum

Sæferðir í Stykkishólmi bjóða upp á úrval af ferðum sem henta hópum (25-120 manns).  Ef þú ert að leita að ferðum fyrir smærri hópa eða einstaklinga þá eru þær hér.

Hér fyrir neðan má finna ferðalýsingar sem geta hjálpað þér við að ákveða hvað hentar þínum hópi. Hafðu svo samband við okkur og við aðstoðum þig við setja saman draumaferðina.


Ævintýrasigling - einkaferð

 

Upplýsingar


Frá: Stykkishólmi

  Hvenær:   Allt árið

 
 
 
 
Lengd:
2,5 klst.
 Verð: Tilboð
 
Fuglar, ferskt skeljasmakk, eyjarnar óteljandi, sagan og ógleymanleg ævintýri!
Nánari lýsingu á Ævintýrasiglingunni má finna hér.

Bættu við veisluhlaðborði eftir siglinguna og þá ertu komin með "Veisluferð" eins og er hér fyrir neðan.

Þessi ferð er einnig á áætlun frá 15. maí - 15 september og hægt er að bóka hópa inn í þær ferðir.



Veisluferð - einkaferð



 

  

Upplýsingar


Frá: Stykkishólmi

  Hvenær: Allt árið

 
 
 
 
Lengd:
3-4 klst.
 Verð: Tilboð
 
Ferðin byrjar eins og hin vinsæla Ævintýrasigling Sæferða, þar sem er sigldur er hringur um suðureyjar Breiðafjarðar. Fuglalíf og ýmis náttúrufyrirbrigði skoðuð. Skelfiskur veiddur og snæddur beint úr hafinu ásamt ígulkerahrognum. Á Breiðasundi er boðið upp á glæsilegt hlaðborð.
Hér má sjá myndir úr Veisluferðum


Miðnætursigling Sæferða

     

  

Upplýsingar


Frá: Stykkishólmi

  Hvenær:   maí - júlí

 
 
 
 
Lengd:
8 klst.
 Verð: Tilboð
 
Byrjað er á skemmtilegri útsýnissiglingu um suðureyjar Breiðafjarðar. Lítill plógur er settur út og upp koma ýmiskonar sjávardýr. Öllum gefst tækifæri á að smakka ferska hörpuskel og ígulkerjahrogn :-)
Létt snarl er svo borið fram í útsýnissal skipsins - matseðillinn ræðast af óskum hópsins.
Nú er stefnan sett á hina fornfrægu eyju Flatey. Gengið er um eyjuna með leiðsögumanni. Síðan býður lúxus-miðnæturverður eftir hópnum í Samkomuhúsinu; veitingastað Hótel Flateyjar.
Fyrir miðnættið er svo vengið upp á hæsta punkt Flateyjar (sem er eins og nafnið bendir til ekkki mjög há) og fylgst með hinni einstöku íslensku miðnætursól  :)




Ævintýraheimur Breiðafjarðar

     

  

Upplýsingar


Frá: Stykkishólmi

  Hvenær:       maí - sept.

 
 
 
 
Lengd:
8-12 klst.
 Verð:

Tilboð

 
Í þessari ferð færð þú að upplifa ævintýraheim Breiðafjarðar :-)
Ferðin byrjar eins og hin vinsæla Ævintýrasigling en farþegar hér fá tækifæri til að fara í land á hæstu eyju Breiðafjarðar - Dímonaklökkum. Þaðan er hreint ótrúlegt útsýni.
Nú er komið að því að smakka ferska hörpuskel og ígulkerjahrogn! Þetta lostæti sjávarins er borði fram með hvítvíni og dýfum og segja má að þetta sé ferskasta sushi í heimi! Síðan er boði upp á hádegisverð um borð og svo enn meira af eyjunum óteljandi.
Því næst er farið í Flatey - þar sem tíminn hefur staðið kyrr í marga áratugi. Mögulegt er að bæta við kvöldverði á Hótel Flatey eða um borð.


 


Undirvalmynd

Bóka núna

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann og fáðu send tilboð og fréttir.

Bookmark and Share
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is