Leitarvél


Þú ert hér

Dagsferðir og afþreying

Haust- og vortilboð í Veisluferðir Sæferða

Til baka |  Prenta |  Senda |  Forsíða

Upplýsingar 2010

Vortímabil: 15. mars - 10. júní
Hausttímabil: 20. ágúst - 31. október
Verð: 7.880 kr. fyrir fullorðna
Skilyrði: Lágmark 30 manns og opnar ferðir
Innifalið: Sigling, leiðsögn, veisluhlaðborð og skeljasmakk

Matseðill Veisluferða

  • Hrefnukjöt
  • Fjörulamb kalt
  • Sjávarréttapate
  • Bayonnesskinka
  • Innbakað pate með rifsberjahlaupi
  • Reyktur lax
  • Grafinn lax
  • Sjávarréttasalat
  • Kartöflusalat
  • Fersk salat
  • Nýbakað brauð
  • Kaffi eða tebolli

Tenglar og tengdar upplýsingar

Skeljasmakk, óborganlegt útsýni, fuglarnir, eyjarnar óteljandi og glæsilegt hlaðborð

Sæferðir í Stykkishólmi bjóða upp á glæsilegar veisluferðir og á vorin og haustin eru sérstök tilboð í þessar ferðir.

Þessar ferðir eru tilvaldar fyrir starfsmannahópa, skemmtiferðir fyrirtækja og félagasamtök sem vilja gera sér glaðan dag.

Hér má sjá myndir úr Veisluferðum Sæferða


Lýsing á Veisluferð

Í veisluferðum Sæferða er siglt um óteljandi eyjar Breiðafjarðar, söguslóðir heimsóttar og sterkustu sjávarfallastraumar við Íslandsstrendur kannaðir.

Á sumrin iðar svæðið af fuglalífi og þá má meðal annars sjá toppskarfa, lunda, ritu, kríu, fýl, æðarkollu og stundum jafnvel haförninn, konung íslenskra fugla.

Hápunktur ferðarinnar er þegar plógur er settur út og upp koma ýmis skeldýr af botni sjávar. Gestir okkar fá tækifæri til að skoða gersemarnar..... en einnig smakka á hörpuskel og ígulkerjahrognum sem eru hið mesta lostæti beint af hafsbotninum!


 Á heimleiðinni er svo boðið upp á glæsilegt hlaðborð og óborganlegt útsýni - sjá matseðil hér til hliðar


Frekari upplýsingar og bókanir

Endilega hafið samband við okkur í síma 4332254 eða á tölvupósti






Undirvalmynd

Bóka núna

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann og fáðu send tilboð og fréttir.

Bookmark and Share
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is