Leitarvél


Þú ert hér

Dagsferðir og afþreying


Ógleymanlegar starfsmannaferðir

Til baka |  Prenta |  Senda |  Forsíða

Upplýsingar 2009

Frá                         Stykkishólmi
Lengd ferðar:     3,5 - 4 klst.
Áætlun:                eftir samkomulagi
Verð:                    8.700,- kr.  -  (lágmark 25 manns)
Vor- og hausttilboð: sjá nánar hér

Hlaðborð

nýr matseðill í vinnslu

Frekari upplýsingar



Langar þig að eiga skemmtilegan dag með samstarfsfólki þínu?

Sæferðir í Stykkishólmi bjóða upp á glæsilegar veisluferðir þar sem aðbúnaður og aðstaða farþega er eins og best verður á kosið. Í skipum okkar eru salir fyrir allt að 160 farþega, þar sem allir geta setið við borð ásamt góðri útiaðstöðu. 


Veisluferð Sæferða

Í veisluferðum Sæferða er siglt um óteljandi eyjar Breiðafjarðar, söguslóðir heimsóttar og sterkustu sjávarfallastraumar við Íslandsstrendur kannaðir.

Á sumrin iðar svæðið af fuglalífi og þá má meðal annars sjá toppskarfa, lunda, ritu, kríu, fýl, æðarkollu og stundum jafnvel haförninn, konung íslenskra fugla.

Hápunktur ferðarinnar er þegar plógur er settur út og upp koma ýmis skeldýr af botni sjávar. Gestir okkar fá tækifæri til að skoða gersemarnar..... en einnig smakka á hörpuskel og ígulkerjahrognum sem eru hið mesta lostæti bein af hafsbotninum!


 Á heimleiðinni er svo boðið upp á glæsilegt hlaðborð og óborganlegt útsýni - sjá matseðil hér til hliðar.


Aðrar ferðir

Hægt er að sníða ferðir að þörfum hvers hóps.  Hér má sjá tillögur að fleiri ferðum fyrir hópa.

Endilega fyllið út formið hér fyrir neðan og við búum til draumaferðina fyrir þitt fyrirtæki  :)


Við mælum einnig með...

  • Stoppi í Landnámssetrinu í Borgarnesi á leiðinni í Stykkishólm.
  • Viðkomu í Bjarnarhöfn og fá kennsku í því hvernig "á" að borða hákarl og brennivín
  • Gistingu á svæðinu; Hótel Stykkishólmur og Hótel Framnes í Grundarfirði eru með frábæra aðstöðu.
  • Gönguferð um Stykkishólm með leiðsögumanni
  • Útsýninu úr Vatnasafninu
  • Hvítvíni með skeljasmakkinu um borð :)



Fyrirspurnarform

Dagsetning: Fjöldi:











Undirvalmynd

Bóka núna

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann og fáðu send tilboð og fréttir.

Bookmark and Share
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is