Tenglar og tengdar upplýsingar
Svæðið okkar
Snæfellsnes og
Breiðafjörðurbjóða upp á einstakt tækifæri til útivistar og náttúrupplifunar. Þar er hægt að finna fjölbreytta afþreyingu og þjónustu við allra hæfi.
Breiðafjörðurinn er þekktur fyrir eyjarnar óteljandi, einstaka náttúrufegurð, fjölbreytt
fuglalíf og söguslóðir.
Snæfellsjökull er líklega þekktasta kennileiti Snæfellsness enda sést jökullinn víða að. Hann er nú orðinn að þjóðgarði og er gestastofa að Hellnum á sumrin.
Snæfellsnesið lumar einnig á öðrum náttúruperlum s.s. Djúpalónssandi, Arnarstapa, Berserkjahrauni, Helgafelli, Búðir og Eldborg.
Stykkishólmur bíður upp á úrval veitinga- og gististaða, sundlaug, söfn, fallegar gönguleiðir og kajakferðir.
Velkomin á svæðið okkar - við tökum vel á móti þér!