Vetraráætlun til Flateyjar
Sumaráætlun 2010
Dagsferði
frá Stykkishólmi:
10. júní - 22. ágúst
Frá Stykkishólmi 9:00:
Komin til Flateyjar
|
10:30
|
Brottför frá Flatey
|
13:15 eða 20:00
|
Frá Stykkishólmi 15:45:
| Komin til Flateyjar |
17:15
|
| Brottför frá Flatey |
20:00
|
Áætlun yfir fjörðinn og frá Brjánslæk Sjá nánar
Bílar: Athugið að ekki er hægt að fara með bíla í Flatey.
Hægt er að senda bíla á undan sér yfir fjörðinn
og stoppa í Flatey.
Sumarverð 2010
Tenglar og tengdar upplýsingar
Flatey á Breiðafirði
þar sem tíminn stendur kyrr...
Flatey er ein af náttúruperlum landsins og þekkt fyrir sitt einstaka tímaleysi. Á eyjunni búa í dag 5 einstaklingar allt árið um kring, en á sumrin bætast við ferðamenn og eigendur sumarhúsa sem margir hverjir eiga ættir sýnar að rekja til Flateyjar.
Þegar rölt er um eyjuna er eins og að vera komin um 100 ár aftur í tímann. Húsin í gamla þorpinu hafa verið gerð upp í hinum litskrúðuga gamla stíl og augljóst að mikið er lagt upp úr að halda í upprunalegu mynd þorpsins.
Fyrir ferðamenn er margt að sjá og skoða í eyjunni; einstaka náttúru, fjölskrúðugt fuglalíf, kirkjuna með málverkum Baltasars, kyrrðina, tímaleysið, gömlu bókhlöðuna, söguslóðir og gamla þorpið. Ef hungrið sækir að er hægt að gæða sér á ljúffengum kræsingum í veitingasal
Hótel Flateyjar eða taka með sér nesti og fara í ævintýralega lautarferð með fjölskyldunni.
Auðvelt aðgengi - Ferjan Baldur
Á sumrin siglir
ferjan Baldur daglega tvær ferðir yfir Breiðafjörðinn frá Stykkishólmi til Brjánslækjar með viðkomu í Flatey. Það er því hægt að skreppa í út í eyju í nokkra klukkutíma, heilan dag eða jafnvel nýta sér eitthvað af gistimöguleikunum og njóta eyjunnar í lengri tíma.
Fyrir þá sem ferðast með bíl, er mögulegt að senda bílinn á undan sér yfir fjörðinn á meðan stoppað er í Flatey. Þetta er mjög hentugur kostur fyrir þá sem eru t.d. að ferðast yfir á Vestfirði en vilja stoppa á leiðinni og njóta eyjarinnar um stund.
Gistimöguleikar í Flatey
Í Flatey er boðið upp á fjölbreytta gistimöguleika. Fyrst ber að nefna hið rómantíska nýja
Hótel Flatey (555 7788). Hótelið er staðsett í miðju þorpinu í einstaklega vel uppgerðum húsum. Veitingasalur hótelsins er í gamla samkomuhúsinu þar sem Flateyingar dönsuðu og skemmtu sér í marga áratugi.
Báðir bæirnir sem eru í heilsársbyggð bjóða upp á bændagistingu (Læknishús-438 1476 og Krákuvör-4381451) og við Krákuvör er einnig tjaldsvæði.
Kvikmyndin Brúðguminn - Tekinn upp í Flatey
Brúðguminn, nýjasta kvikmynd Baltasars sem kom út í vetur, var að mestu leiti tekin upp í Flatey. “Myndin hefur hlotið verðskuldaða athygli en í henni má sjá einstaklega fallegar og hugljúfar senur úr eyjunni. Við finnum fyrir auknum áhuga á Flatey í kjölfar myndarinnar og það hefur færst mikið í vöxt að fólk kaupi gjafabréf á Hótel Flatey og ferð með ferjunni til að gefa í stórafmælisgjafir” segir Kristrún Konráðsdóttir, markaðsstjóri Sæferða.
Leiðsögn um Flatey
Nú í sumar er í fyrsta skipti boðið upp á daglegar ferðir með leiðsögn um eyjuna. Þessar ferðir gefa mjög skemmtilega innsýn inn í horfna tíma, sögu og náttúrufar eyjunnar. Ferðirnar taka um klukkutíma og rölt er frá bryggjunni þar sem Ferjan Baldur leggst að, að kirkjunni með sögulegu málverkunum, niður í gamla þorpið og út á Lundaberg þar sem sjá má fjölda fuglategunda sem og dulmagnaðan huldufólksstein.
Ferðirnar kosta 600 kr. fyrir fullorðna og hægt er að kaupa miða í afgreiðslu Sæferða, um borð í Baldri og hjá leiðsögumanni í Flatey (ath. þar er aðeins hægt að greiða með peningum).