Leitarvél


Þú ert hér

Svæðið okkar


Stykkishólmur

Til baka |  Prenta |  Senda |  Forsíða

Tenglar og tengdar upplýsingar

Texti fengin að láni frá upplýsingaveitunni nat.is

Afþreying á svæðinu
Flatey
Vesturland
Stykkishólmur er oft kallaður höfuðstaður Snæfellsness. Bærinn stendur á innanverðu Snæfellsnesi, yst á Þórsnesi. Byggðin stendur á klettaborgum með flóasundum á milli. Þarna eru þrír aðalklettahryggir, sem liggja frá norðaustri til suðvesturs, Ytrihöfði, Höfði og Steinólfshóll.

Bærinn ber nafn sitt af klettahólmanum Stykki, sem er nú undir aðalbryggjunni. Höfnin er góð frá náttúrunnar hendi, þar sem Súgandisey, sem er tengd landi með hafnargarði, liggur þvert fyrir landi og ver hana fyrir norðanáttinni.

Fransiskussystur reistu sér klaustur, skóla, prentsmiðju og kirkju í Stykkishólmi árið 1936. Þær byggðu síðan spítala þar af miklum stórhug og er hann starfræktur enn í dag. Amtbókasafnið var stofnað árið 1847 og árið 1960 var byggt hús yfir það á Þinghúshöfða.

Frá Stykkishólmi eru ógleymanlegar skoðunarferðir milli hinna fjölmörgu eyja Breiðafjarðar. Almennt má segja að ferðaþjónusta í Stykkishólmi sé mjög fjölbreytt og er þar m.a. boðið upp á veiði á sjó, í vötnum og ám.

Vegalengdin frá Reykjavík er um 174 km um Hvalfjarðargöng og Vatnaleið.

Undirvalmynd

Bóka núna

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann og fáðu send tilboð og fréttir.

Bookmark and Share
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is