04.01.2010 | 12:21Pétur sæmdur riddarakrossi Árið byrjaði aldeilis vel hjá okkur hjá Sæferðum. Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á nýjársdag sæmdi forseti Íslands Pétur Ágústsson framkvæmdastjóri Sæferða riddarakrossi fyrir frumkvæði sitt í ferðaþjónustu.
Þetta er að okkar mati viðurkenning á hinu fórnfúsa starfi sem hann hefur unnið við uppbyggingu fyrirtækisins á undanförnum árum með afar jákvæðum árangir fyrir starfsmenn og hluthafa félagsins.
Þetta er mikil viðurkenning og þakkar Pétur fjölskyldu sinni, vinum og samstarfsmönnum fyrir stuðninginn og samstarfið í gegnum árin. Hann nefnir sérstaklega Svanborgu konuna sína og segir að “líklega hefði ekki tekist að ná eins langt án hennar trygga og fórnfúsa stuðnings. Að mínu mati á hún ekki minni hluta í þessu en ég.”
Starfsfólks og eigendur Sæferða eru afar stolt af manninum í brúnni og hlökkum til að vinna við hans hlið um ókomin ár.