Leitarvél


Þú ert hér

Til baka |  Prenta |  Senda |  Forsíða

Lesa frétt

02.03.2010 | 12:53 FERJAN BALDUR - mikilvæg tilkynning

FERJAN BALDUR
TIL AÐ LEIÐRÉTTA MISSKILNING.

Kæru viðskiptavinir.

Í kjölfar þess að við þurftum nauðug að breyta fyrirkomulagi á afsláttarkjörum með ferjunni Baldri, höfum við orðið vör við misskilning hjá allmörgum viðskiptavinum.  Þessi misskilningur er aðallega sá, að auk mikilla útgjalda í upphafi séu við notkun afsláttarkortanna mikil höft  er varðar nýtingu fyrir alla fjölskyldumeðlimi,  t.d. hjá stórum fjölskyldum.  Talið er að þetta borgi sig alls ekki miðað við gamla fyrirkomulagið og að betra sé jafnvel orðið að keyra landleiðina. Til þess að leiðrétta þennan misskilning og skerpa á öllum valmöguleikum viljum við benda á eftirfarandi punkta.:

? Dýrustu kortin (45% afsláttur) er hægt að greiða í 5 hlutum með mánaðar millibili. Þetta þýðir að greiðslan er kr. 10,164.-  í hvert sinn. Greiðslur bera enga vexti. Fullt fargjald aðra leið fyrir bíl og tvo farþega er núna  kr.9,240.-

? Hægt er að fá lengri greiðsludreifingu t.d. fyrir þá sem nota kortið einir og fara sjaldan. Þó samt ekki lengri en til þess tíma að fá þurfi nýtt kort. Greiðslur bera enga vexti.

? Afláttur fyrir ofangreint kort hækkar upp í 52,5% ef kortið er staðgreitt.

? Ef margir ætla að nýta sama kortið er hægt að taka út á kortið auka farmiða eins og hver vill til að dreifa á fjölskylduna eftir þörfum. Þess vegna má taka út á allt kortið í byrjun. Í þeim tilfellum þarf að taka skýrt fram fyrir hverja er verið að taka út miða s.s. eldri borgara, börn á ½ fargjaldi o.s.frv. þar sem miðar eru einkenndir.

? Í þeim tilfellum sem fólk er komið með farmiða þarf ekki að mæta í afgreiðslu hverju sinni. Panta þarf samt alltaf fyrir bíla og taka fram í bókuninni að viðkomandi séu með miða.

? Kortið gildir svo lengi sem það endist og verðbreytingar á fargjöldum hafa ekki nein áhrif. Í þessu sambandi er vert að benda á hagræði þess að fá sér kort fyrir sumarið en þá mun fargjald hækka tímabundið eins og á síðasta ári.

? Vert er einnig að benda eldri borgurum á að með tilkomu þessarra korta komast þeir með ferjunni fyrir einungis kr. 847.-  í stað kr. 2,465.-  sem er fullt fargjald fyrir eldri borgara.   

Ef frekari spurningar vakna, þá endilega hafið samband í síma 433 2254 eða á tölvupóst   Heimasíða: www.seatours.is

Starfsfólk Sæferða.



Undirvalmynd

Bóka núna

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann og fáðu send tilboð og fréttir.

Bookmark and Share
Byggir á Summit vefstýrikerfinu frá IGM ehf. www.igm.is