Inspired by Iceland

Svæðið okkar

content-imgSnæfellsnes og Breiðafjörður bjóða upp á einstakt tækifæri til útivistar og náttúrupplifunar. Þar er hægt að finna fjölbreytta afþreyingu og þjónustu við allra hæfi. Breiðafjörðurinn er þekktur fyrir eyjarnar óteljandi, einstaka náttúrufegurð, fjölbreytt fuglalíf og söguslóðir. Snæfellsjökull er líklega þekktasta kennileiti Snæfellsness enda sést jökullinn víða að. Hann er nú orðinn að þjóðgarði og er gestastofa að Hellnum á sumrin. Snæfellsnesið lumar einnig á öðrum náttúruperlum s.s. Djúpalónssandi, Arnarstapa, Berserkjahrauni, Helgafelli, Búðir og Eldborg. Stykkishólmur bíður upp á úrval veitinga- og gististaða, sundlaug, söfn og fallegar gönguleiðir. Velkomin á svæðið okkar - við tökum vel á móti þér! Hér finnur þú kort af Vesturlandi sem þú getur prentað út og tekið með í ferðalagið eða hlaðið niður í tölvuna. Korti'ð er í 2 hlutum í JPG formati (um 600 kb hvort). Vesturlandskortið er gefið út af Vesturlandsstofu - vesturland.is

Bjarnahöfn

Eirikstadir

Glacier Tours

Stykkishólmur