Inspired by Iceland

Breiðafjörður

Breiðafjörðurinn er þekktur fyrir sínar óteljandi eyjar og einstaka náttúru og fuglalíf.

Sæferðir bjóða upp á ýmiskonar útsýnisferðir um þetta fallega svæði.

Fyrsta mætti nefna Ævintýrasiglinguna sem gefur farþegum tækifæri til að skoða náttúru og fugla svæðisins í návígi og smakka hráa hörpuskel beint af hafsbotni!

Með ferjunni Baldri gefst ferðalöngum tækifæri á að heimsækja hina fornfrægu eyju Flatey. Þar er margt að skoða og upplifa; einstaka náttúru, fjölskrúðugt fuglalíf, kirkjuna með málverkum Baltasars, kyrrðina, tímaleysið, gömlu bókhlöðuna, söguslóðir, gamla þorpið og margt fleira.

Einnig bjóða Sæferðir upp á ýmiskonar sérferðir fyrir einstaklinga og hópa. Hér má sjá nokkrar tillögur að sérferðum.

Fuglar Breiðafjarðar

Breiðafjörðurinn er hrein fuglaparadís og frábær staður fyrir áhugamenn um fuglaskoðun.

Í ÆvintýrasiglinguSæferða er hægt að sjá fjöldann af fuglategundum en einnig er Flatey á Breiðafirði þekkt sem góður fuglaskoðunarstaður.

Hér til hliðar má finn hreint frábæran bækling um fuglalíf á Breiðafirði sem Breiðafjarðarnefnd hefur gefið út.

Hægt er að hlaða bæklingnum niður eða óska eftir að fá sent eintak hér.