Inspired by Iceland

Um Sæferðir

Sæferðir í Stykkishólmi hafa yfir 20 ára reynslu í skemmtisiglingum á Breiðafirði. Fyrirtækið var stofnað árið 1986 og hefur vaxið ört síðan og er í dag eitt af stærstu afþreyingarfyrirtækjum á landsbyggðinni. Fyrirtækið á og rekur þrjá báta þar sem öll tæki uppfylla ströngustu öryggiskröfur.

Sæferðir bjóða upp á fjölbreyttar siglingar, m.a. Ævintýrasiglingu, sjóstangveiði, ferjuna Baldur sem siglir yfir Breiðafjörðinn með viðkomu í Flatey, veisluferðir og ýmsar sérferðir fyrir hópa og einstaklinga.
Það er úr nógu að velja!

Komdu og njóttu stórkostlegs umhverfis Breiðafjarðar með okkur!

Starfsfólk Sæferða