Særún

Skemmtiferðaskipið Særún er tvíbytna sem tekur allt að 115 farþega. Um borð er veitingasalur með sæti fyrir 98 manns.

Á dekkinu eru bekkir fyrir farþega og frábært útisvæði þar sem hægt er að njóta náttúrunnar og góðrar leiðsagnar sem boðið er upp á í ferðunum. Aftan á dekkinu er borð og plógur sem notaður er til að veiða ferskmeti úr sjónum og gefst farþegum færi á að smakka á aflanum. Ferskara gerist það ekki!

Fuglalíf og náttúra eru í aðalhlutverki í ferðum Særúnar. Í ferðunum er yfirleitt möguleiki að sjá haförn, toppskarf, rítu, fíl, æðarfugl, seli og frá fyrsta janúar má sjá háhyrningum bregða fyrir.

Særún

Tölulegar upplýsingar

Skipið er 194 brúttótonn að stærð. Lengd þess er 25.92 metrar og breidd þess 8 metrar. Skipið hefur tvær vélar hvor þeirra er 484 KW. Ganghraði skipsins er mestur 18 sjómílur, sem þýðir að það tekur um 2kl og 15 mínútur að sigla Suðureyjasiglingju og veiða skelfisk , skoða fuglalíf og bergmyndanir á cirka 0 til14 mílna hraða. Í skipið komast 90 farþegar í hverja ferð.
Skipið er mjög vel búið af siglingatækjum og björgunarbúnaði.